Nonni og Manni - samantekt, myndbönd og myndasafn

Neðst í fréttinni eru slóðir á myndbönd og myndir.

Nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla ákváðu að fara af krafti í þemavinnu um þá Nonna og Manna. Vinnan hófst með stuttri kynningu á þeim bræðrum og á sex vikna tímabili horfðu allir nemendur og starfsfólk saman á einn sjónvarpsþátt á viku um kappana og þeirra ævintýri. Þættirnir sex, sem nutu mikilla vinsælda fyrir mörgum árum síðan, féllu gríðarlega vel í kramið hjá nemendum og mátti sjá einbeitingu og áhuga skína úr hverju andlitið við áhorfið. Samhliða áhorfi á þættina söfnuðu nemendur orðum og hugtökum sem þeir leituðu skýringa á og bjuggu til myndverk og söguvegi út frá söguþræði einstakra þátta. 

Þemavinnan náði hámarki í vikunni fyrir Dag íslenskrar tungu en þá viku var allt skólastarf undirlagt í fjölbreyttri skapandi vinnu byggða á sögu þeirra bræðra og umhverfi og aðstæðum sem þeir ólust upp við. Nemendur völdu sér stöðvar frá degi til dags og góð aldursdreifing varð á öllum stöðvum. Í boði var að baka bakkelsi í anda fyrri tíma, endurgera og framleiða senur úr þáttunum, fræðast um Jón Sveinsson, kynnast fatnaði, tónlist og tískustraumum fyrri tíma, búa til líkön úr pappamassa og endurgera persónur og umhverfi eða gerast fréttamenn og framleiða fréttir. Auk þess var ein mikilvæg stöð sem kallast hvíldarstöð, en þangað var hægt að fara til að taka sér pásu, spila, lesa, leira og kubba.

Á síðasta degi vikunnar var blásið til lokahátíðar þemavinnunnar. Starfsfólk dressaði sig upp í þjóðbúninga eða búninga eins og persónur þáttanna klæddust og nemendur mættu sumir spariklæddir eða klæddir fatnaði frá fyrri tíma. Foreldrum/forráðamönnum, ömmum og öfum og sveitungum öllum var boðið til hátíðarhalda. Fyrst var opið hús þar sem gestir skoðuðu afrakstur vinnunnar, kíktu í kvikmyndahús, settust niður á kaffihúsinu og gæddu sér á bakkelsi sem nemendur bökuðu og blönduðu geði. Jafnframt var boðið uppá stutta reiðtúra á skólalóðinni hvar knapar úr hópi nemenda teymdu undir áhugasömum. Að lokum var blásið til hátíðardagskrár á sviði þar sem glaðir gestir fylltu salinn okkar. Nemendur spiluðu og sungu, héldu tískusýningu og dönsuðu skottís og vikivaka. Rúsínan í pylsuendanum var svo að kynna á svið heiðursgesti dagsins, en það voru þeir Garðar Thor Cortes og Einar Örn Einarsson, sem léku Nonna og Manna í áðurnefndum þáttum. Öll þökkum við þeim félögum hjartanlega fyrir komuna norður. Fréttamenn úr röðum nemenda breyttu sviðinu í stúdíó og spurðu heiðursgestina spjörunum úr. Þeir félagar slógu í gegn, eins og þeirra er von og vísa og var það ekki síður eldra fólkið en það yngra sem gladdist yfir heimsókn þeirra í skólann. 

Það voru sælir og glaðir starfsmenn sem fögnuðu saman að góðu verki loknu. Nemendur stóðu sig frábærlega í þessari vinnu og samhljómur var um að skólastarf sem þetta gefur lífinu lit.

Endurgerðar senur úr þáttunum

Frá fréttastofu Þelamerkurskóla - samantekt

Skottís og vikivaki - hátíðardagskrá

Myndasafn frá þemavinnunni, vettvangsferð og lokahátíð