Öskudagsball í skólanum -myndir

Tunnukóngur skólans 2019
Tunnukóngur skólans 2019

Eins og hefð er fyrir verður öskudagsgleði Þelamerkurskóla á sprengidaginn sem er þriðjudaginn 5. mars  nk. Nemendur geta komið strax um morguninn í búningum sínum og máluð, en fram að hádegi er kennt samkvæmt stundaskrá.  Hádegismatur verður frá kl. 12.00 – 12.30 og frá 12.30 – 13.00 undirbúa nemendur sig fyrir öskudagsballið. Þeir sem þurfa aðstoð við málun fá hana í stofu 3.

Öskudagsskemmtunin hefst á sal kl. 13.00.

 Dagskrá hennar er: Kötturinn sleginn úr tunnunni                                                               

Tunnukóngur/drottning krýnd/ur með viðhöfn                                       

 Söngvakeppni öskudagsliða                                                                   

Marsering undir stjórn elsta námshópsins – skólavinir marsera saman. Síðan verður öskudagsball þar sem allir taka þátt

Á öskudagsskemmtuninni þurfa allir að vera í búningum og það telst ekki búningur að setja á sig derhúfu eða svitaband. Foreldrar í búningum eru velkomnir á skemmtunina.  

ATH: Það verður vetrarleyfi í skólanum 6 – 8. mars

Rútur fara heim á venjulegum tíma eða kl. 14.20.

Eins og við öll vitum þá er tíminn fyrir öskudag er oftast hlaðinn tilhlökkun hjá börnunum. En hjá sumum er hann líka hlaðinn ákveðinni spennu sem myndast við skipan í öskudagslið. Við viljum biðja foreldra um að aðstoða börn sín við að setja saman liðin með því að ráðfæra sig hver við annan svo að allir sem þess óska komist glaðir í öskudagslið. 

Hér eru nokkrar myndir frá þessum degi.