Öskudagsgleði í ÞMS þriðjudaginn 25. febrúar

Eins og hefð er fyrir verður öskudagsgleði Þelamerkurskóla á sprengidaginn sem er þriðjudaginn 25. febrúar.

Nemendur geta komið strax um morguninn í búningum sínum og máluð, en fram að hádegi er kennt samkvæmt stundaskrá. 

Hádegismatur verður frá kl. 12.00 – 12.30 og frá 12.30 – 13.00 undirbúa nemendur sig fyrir öskudagsballið.

Þeir sem þurfa aðstoð við málun fá hana í stofu 6.  Öskudagsskemmtunin hefst á sal kl. 13.00.

 Dagskrá hennar er:

Kötturinn sleginn úr tunnunni                                                        

Tunnukóngur/drottning krýnd/ur með viðhöfn  

Söngvakeppni öskudagsliða        

Öskudagsball                  

Úrslit úr söngvakeppninni

Marsering undir stjórn elsta námshópsins  Skólavinir marsera saman                                                                                           

Á öskudagsskemmtuninni væri gaman ef allir að gætu verið í búningum. Foreldrar eru auðvitað velkomnir á skemmtunina.  

Rútur fara heim á venjulegum tíma eða kl. 14.25.

ATH: Það verður vetrarleyfi í skólanum 26. - 28. febrúar

Eins og við öll vitum þá er tíminn fyrir öskudag er oftast hlaðinn tilhlökkun hjá börnunum. En hjá sumum er hann líka hlaðinn ákveðinni spennu sem myndast við skipan í öskudagslið. Við viljum biðja foreldra um að aðstoða börn sín við að setja saman liðin með því að ráðfæra sig hver við annan svo að allir sem þess óska komist glaðir í öskudagslið.