Fimmtudaginn 22. maí fóru 22 nemendur úr 5.-7. bekk á Samskóladag á Stórutjörnum. Á Samskóladögum hittast nemendur frá Grenivikurskóla, Valsárskóla auk okkar og gestgjafanna á Stórutjörnum. Veðrið lék við okkur eins og sjá má á myndunum.
Dagurinn byrjaði í íþróttahúsi í nokkrum nafnaleikjum og hópeflisleikjum. Síðan var nemendum skipt í hópa sem rúlluðu á milli fjögurra stöðva. Á stöðvunum var meðal annars farið í útibingó, gagabolta, farið í boltaleikinn yfir, kött og mús og fleiri leiki. Að lokum var snæddur hádegisverður, hoppað upp í rútu og brunað heim. Ekki var að sjá annað en að flestir nemendur skemmtu sér vel.
Nokkrar myndir frá deginum.