Skólahreysti

Skólahreystislið Þelamerkurskóla
Skólahreystislið Þelamerkurskóla

Þelamerkurskóli átti flotta fulltrúa í Skólahreysti sem fram fór í Íþróttahöllinni á Akureyri fimmtudagskvöldið 30. apríl. Það voru þau Heiðar Aron og Ylva Sól sem tóku þátt í hraðabraut. Hector Leví gerði upphífingar og dýfur og Tanja Björt tók þátt í armbeygjum og greininni að hanga sem lengst. Til vara voru Rafael Hrafn og Áróra Heiðbjört en Áróra fékk tækifæri til að spreyta sig á hraðaþrautinni þar sem fjöldi skóla í okkar riðli stóð á oddatölu. Þau stóðu sig öll með prýði og við erum mjög stolt af þessum mögnuðu krökkum að taka þátt í Skólahreysti. Frá Þelamerkurskóla mætti öflugt lið stuðningsfólks sem hvatti okkar fólk til dáða. Hér má sjá myndir frá Skólahreysti.