Skólaslit 5. júní 2026

Skólaslit 7.-10. bekkjar í Hlíðarbæ
Skólaslit 7.-10. bekkjar í Hlíðarbæ

Skólaslit 1.-6. bekkjar fóru fram á sal skólans 5. júní. Við upphaf skólaslitanna flutti Agnes Emilía og Sunneva tónlistaratriði. Hver bekkur kom síðan upp og kvaddi kennarana sína. 10. bekkingar buðu verðandi fyrstu bekkinga velkomna í skólann og færðu þeim birkiplöntu og buff merkt Þelamerkurskóla. Á yngsta stigi voru veittar nokkrar viðurkenningar, Styrmir Jaki í 3. bekk hlaut viðurkenninguna Sólskinsverðlun en þau eru veitt fyrir háttvísi, jákvæðni og góða framkomu. Sunneva hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í sjónlistum og textílmennt. Framfaraverðlaun í ár hlaut Víkingur Alex. Hér má sjá myndir frá skólaslitum 1.-6. bekkjar.

Skólaslit 7.-10. bekkinga fóru fram við hátíðlega athöfn í Hlíðarbæ þar sem 10. bekkur var útskrifaður með viðhöfn og aðrir nemendur kvaddir inn í sumarið. Flutt voru tvö tónlistaratriði en bæði komu þau úr röðum útskriftarnema, það voru þeir Sigurður Sölvi sem spilaði á rafmagnsgítar og Arnsteinn Ýmir sem söng frumsamið lag og spilaði á gítar. Efemía Birna flutti kveðju frá útskriftarnemum. Nokkrar viðurkenningar voru veittar. Tinna Margrét hlaut viðurkenninguna íþróttaálfur Þelamerkurskóla og framfaraverðlaun hlaut Hjördís Edda. Jónasarverðlaunin voru veitt Efemíu Birnu fyrir framúrskarandi árangur í íslensku og náttúrugreinum. 

Þó nokkrir starfsmenn vori kvaddir á skólaslitunum og þeim þökkuð vel unnin störf. Við óskum þeim öllum velfarnaðar í þeim fjölbreyttum verkefnum sem bíða þeirra. Við lok skólaslita kvaddi Jóhanna María Oddsdóttir formaður fræðsluráðs sér hljóðs og veitti Önnu Rósu Friðriksdóttur þakklætisvott og þakkaði henni fyrir vel unnin störf en hún lætur af störfum eftir 21 ár í starfi við Þelamerkurskóla. Hér eru myndir frá skólaslitum og útskrift. Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars, sjáumst við skólasetningu 24. ágúst.