- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- Farsæld
Nemendur í 1. til 4. bekk áttu dásamlegan útivistardag sl. þriðjudag. Ferðinni var heitið niður í Gáseyri þar sem leikur, fróðleikur og samvera réðu ríkjum. Nemendur nýttu tímann vel til að rannsaka umhverfið og það var ævintýri líkast að skoða lífríkið við sjóinn. Í fjöruborðinu leyndust ýmsir leyndardómar og fundu krakkarnir meðal annars litla fiska, marglyttur og krabba sem vöktu mikla kátínu. Þau söfnuðu alls kyns steinum og skeljum, þar á meðal fallegum bláskeljum.
Eftir leik í fjörunni settust allir niður og borðuðu saman nesti af bestu lyst í góða veðrinu. Nestið höfðu nemendur útbúið í skólanum fyrr um morguninn, meðal annars flatbrauð með hangikjöti. Þetta var í alla staði mjög vel heppnuð fer sem skilur eftir sig góðar minningar. Eftir frábæra útiveru hélt hópurinn aftur heim að skóla. Þar gæddum við okkur á grilluðum pylsum og fórum svo í hressandi sundferð í laugina okkar. Við þökkum kærlega fyrir frábæran dag og dásamlega samveru með þessum flottu krökkum. Hér má sjá myndir frá deginum.
Kveðja frá yngsta stigi.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |