- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- Farsæld
Hinir árlegu Þelamerkurleikar voru haldnir sl. miðvikudag, 3. júní. Allur skólinn tekur þátt og fara bekkirnir saman á mismunandi stöðvar þar sem nemendur spreyta sig í hinum ýmsu greinum, ýmist einstaklingskeppni eða bekkurinn sem lið.
Keppt var í fjölbreyttum greinum; tröppuhlaupi, actionary, stígvélakasti, boltakasti, spretthlaupi, dekkjaflippi, pílu og samvinnu. Sumar af stöðvunum eiga sinn fasta sess á en svo koma nýjar stöðvar líka inn ár hvert.
Verðlaun eru veitt fyrir bestan árangur á yngsta-, mið- og unglingastigi. Á samvinnustöðinni er verðlaunum aðeins öðruvísi háttað. 1. bekkur fékk verðlaun fyrir bestu samvinnuna og góða framkomu. 5. bekkur fékk verðlaun fyrir frumlegustu hópmyndina. Fyrir samvinnuþrautina sjálfa þar sem bekkurinn í heild vinnur saman að því að leysa ákveðið verkefni vann 3. bekkur, 7. bekkur og 8. bekkur til verðlauna.
Þessu dagur er alltaf virkilega skemmtilegur og heppnaðist hann mjög vel. Veðrið var gott, nemendur stóðu sig vel og allt gekk eins og í góðri sögu. Hér má sjá myndir frá deginum.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |