Umhverfisdagur 15. maí 2026

Unnið í kartöflugarðinum
Unnið í kartöflugarðinum

Í dag áttum við góðan dag í ljómandi góðu veðri þegar árlegur umhverfisdagur fór fram. Allir nemendur tóku þátt í fjölbreyttum og spennandi verkefnum á fjórum mismunandi stöðvum, bæði úti og inni. Hóparnir voru aldursblandaðir og skólavinir fylgdust að og hjálpuðust að við öll verk dagsins.

Verkefnin voru eins fjölbreytt og þau voru mörg. Úti í námu var unnið að uppgræðslu þar sem heyrúllur voru opnaðar og heyi dreift yfir ógróið land. Það verkefni hefur staðið yfir í þónokkur ár og sjá má mikinn árangur af því. Úti í Mörk reittu nemendur gras frá berjarunnum og tóku til og snyrtu útskólasvæðið okkar svo um munaði. Á leiksvæðinu var farið í ýmsa hópleiki þar sem samvinna og hreyfing var í fyrirrúmi. Inni á sköpunarstöð var sjónum beint að hnattrænu réttlæti og má nú sjá fallegar afurðir þeirrar vinnu prýða stóru gluggana í forstofu yngsta og miðstigs. Á fjórðu og síðustu stöðinni var líf og fjör þar sem nemendur settu niður kartöflur og gróðursettu sumarblóm í blómaker sem þau komu fyrir við anddyri skólans. Einnig var sáð fyrir rófum og gulrótum og ýmsar tegundir kálplantna voru gróðursettar í gróðurkassa. Vaskur hópur nemenda smíðaði tvö blómaker til viðbótar og nemendur máluðu bæði blómakerin og gróðurkassana. Hér má sjá myndir frá deginum.