Unglingarnir snyrta skólaumhverfið

Í dag sýndu krakkarnir í 9. og 10. bekk frábært fordæmi. Þau fóru saman út í blíðuna og tíndu rusl í kringum skólalóðina okkar af miklum krafti. Sýndu þau góða samvinnu og er umhverfið okkar mun snyrtilegra en það var áður.