- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- Farsæld
Fulltrúar úr stjórn foreldrafélags Þelamerkurskóla komu í vikunni í heimsókn í skólann og færðu skólanum veglega gjöf. Þetta voru ýmis konar sumarleikföng eins og sippubönd, teygjutvist, húllahringir, boltar, krítar og margt fleira. Það voru þau Margrét Sverrisdóttir og Sindri Aronsson sem komu með gjöfina og hópur nemenda úr 3.-4. bekk tók á móti gjöfinni fyrir hönd skólans, Nemendur voru mjög spenntir að fara að nota allt þetta skemmtilega dót. Við færum foreldrafélaginu bestu þakkir fyrir gjöfina og vitum að hún mun nýtast nemendum skólans mjög vel. Hér má sjá myndir frá heimsókn Margrétar og Sindra.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |