Vegna forfalla er laus staða umsjónarkennara á yngsta stigi við Þelamerkurskóla

Við Þelamerkurskóla eru laus til umsóknar staða umsjónarkennara á yngsta stigi. Óskað er eftir að ráða fjölhæfan, sveigjanlegan, hlýjan og skapandi grunnskólakennara með mikla hæfni í samskiptum við börn. Umsjónarkennarinn vinnur í kennarateymi 1.-4. bekkjar. Í skólanum eru samtals 65 nemendur. Í Þelamerkurskóla er starfað með markvissum hætti í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa öllum nemendum aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst sveigjanleika og skapandi hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru þroski, menntun og samkennd. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga og Byrjendalæsis. Skólinn er heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á rafræna kennsluhætti, útikennslu og skapandi starf.
 
Helstu verkefni
● Annast almenna umsjónarkennslu í teymi með öðrum umsjónarkennara í 1.-4. bekk.
● Stuðla að velferð og framförum nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan
skólans sem utan.
 
Menntunar- og hæfniskröfur
● Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
● Þekking á og reynsla af innleiðingu og notkun Byrjendalæsis.
● Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi.
● Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
● Áhugi á að ná fram því besta úr hverjum nemanda.
● Færni í samvinnu og teymisvinnu.
● Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
 
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf við skólann. Umsóknarfrestur er t.o.m. 5. október 2020. Ferilskrá og umsókn í formi greinargerðar skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/ Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085.