- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- Farsæld
Það var mikið um dýrðir fimmtudaginn 26. mars þegar árshátíð Þelamerkurskóla fór fram. Nemendur og starfsfólk skólans höfðu undirbúið sýninguna vel og lagt mikið á sig við undirbúning leikrita og tónlistaratriða. Einnig áttum við gott samstarf við Tónlistarskóla Eyjafjarðar, bæði fyrir árshátíð og á sýningunni sjálfri.
Verkefni nemenda í aðdraganda árshátíðar voru fjölbreytt. Meðal annars að breyta skólanum í kaffihús, koma íþróttahúsinu í hátíðarbúning, setja upp sjoppu, miðasölu, útbúa leikmuni, æfa söng, dans og tónlistaratriði og margt fleira. Nemendur stóðu sig gríðarlega vel og erum við þakklát fyrir þeirra framlag og fjölda foreldra sem lögðu hönd á plóg við að gera þennan dag að veruleika.
Fjölmargir gestir lögðu leið sína á árshátíðina og gáfu sér tíma til að koma á kaffihlaðborð og skoða verk nemenda í skólanum eftir árshátíðarsýninguna sjálfa. Við þökkum öllum þeim sem komu kærlega fyrir komuna, hér eru myndir frá undirbúningi árshátíðar og árshátíðardeginum sjálfum.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |