- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- Farsæld
Hópurinn byrjaði á að heimsækja Hveravelli í Reykjahverfi þar sem nemendur fengu að skoða tómataplöntur í stóru gróðurhúsi og smakka nýja tómata, paprikur og gúrkur við mikla hrifningu. Því næst var ferðinni heitið til Húsavíkur á Hvalasafnið sem var mjög fróðlegt og áhugavert. Einnig var farið í leiki á sparkvelli Völsunga sem var kærkomið eftir langa bílsetu. Að þessu loknu var farið í Dalakofann á Laugum þar sem hópurinn snæddi pizzuhlaðborð og svo var farið í sund á Laugum. Allt gekk þetta glimrandi vel og voru börnin til fyrirmyndar alla ferðina. Þau voru óneitanlega þreytt eftir langan dag en allir voru sammála um að ferðin hafi heppnast einstaklega vel. Hér má sjá myndir frá deginum.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |