- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- Farsæld
Vorhátíð skólans var haldin á síðasta nemendadegi skólaársins, fimmtudaginn 4. júní. Þá eru foreldrar velkomnir í skólann og allir eiga góða stund saman. Eftir að nemendur höfðu hitt kennara sína í stofunum sínum og fengið sér morgunmat hófst dagskrá niðri í íþróttahúsi. Keppt var í boðhlaupi sem innihélt mismunandi þrautir. Liðin voru skipuð einum starfsmanni, einu foreldri og tveimur nemendum. Það var hörð keppni og mikil gleði. Að því loknu var hin árlega blindraboltakeppni á milli starfsfólks og 10. bekkjar. Hún var æsispennandi og enduðu starfsmenn uppi sem sigurvegarar í ár. Að lokum var tekist á í reipitogi þar sem bekkir kepptu hver við annan. Bekkir tókust á og lögðu mikið á sig til að ná sigri. Eftir góða skemmtun í íþróttasalnum var hægt að skella sér í sund eða fara út á leiksvæði að leika þar sem ýmislegt var í boði. Eldri nemendur buðu upp á andlitsmálningu sem er alltaf vinsælt.
Skólaslit 1.-6. bekkjar voru síðan á dagskrá áður en allir fengu sér grillaðar pylsur fyrir heimferð. Það voru ánægð og brosandi börn sem héldu síðan heim í sumarfrí. Hér má sjá myndir frá vorhátíð.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |