Auglýst er eftir matartækni eða matráði í afleysingu í mötuneytinu

Við Þelamerkurskóla er laus til umsóknar 100% afleysingarstaða matartæknis eða matráðs í mötuneyti skólans. Matartæknir eða matráður hefur yfirumsjón með eldhúsi skólans sem sér um máltíðir fyrir nemendur og starfsfólk skólans sem og sveitarskrifstofu. Næsti yfirmaður er skólastjóri.

Í Þelamerkurskóla eru rúmlega 120 nemendur. Skólinn er heilsueflandi skóli og Grænfána skóli. Jafnframt leggur skólinn áherslu á útinám og fjölbreytileika í skólastarfi, nokkuð sem krefst sveigjanleika alls starfsfólks.

Helstu verkefni

  • Umsjón með mötuneyti skólans í samráði við skólastjórnendur.

  • Umsjón með innkaupum og gerð matseðla í samráði við heilsueflingarráð.

  • Dagleg matargerð sem tekur mið af viðmiðum embættis landlæknis um heilsueflandi skóla og þörfum m.t.t. ofnæmis.

  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám í matartækni og/eða matreiðslu er mikill kostur.

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.

  • Lipurð í samskiptum við börn og fullorðna og sveigjanleiki í starfi.

  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.

Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er t.o.m. 21. sept. 2026. Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is  Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/  Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085.