Fréttir

Sláturdagur í skólanum

Það er vart til þjóðlegri matur en lifrapylsa og blóðmör og mörg heimili taka slátur á haustin. Eins og allir vita þá er slátur bæði hollur og góður matur og því nauðsynlegt fyrir alla að læra hvernig maður býr til þennan þjóðlega mat. Þrátt fyr­ir að yf­ir­leitt sé það eldri kyn­slóðin sem kann yfirleitt til verka í slát­ur­gerðinni teljum við að nauðsynlegt að yngri kynslóðin læri hand­tök­in við sláturgerðina. Það er löng hefð fyrir því í Þelamerkurskóla að nemendur miðstigs búi til lifrapylsu og blóðmör með umsjónarkennurum sínum. Sláturdagurinn fór fram þann þriðjudaginn þann 27. október. Eins og alltaf stóðu krakkarnir sig með miklum sóma og verkið vannst bæði hratt og vel. Slátrið verður síðan á borðum í mötuneytinu í vetur. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru á sláturdaginn.
Lesa meira

Grímu- og töskusala ferðasjóðs. Tilvalið í jólapakkann!

Ferðasjóður 9. og 10. bekkjar í Þelamerkurskóla býður andlitsgrímur og töskur til sölu. Um er að ræða vandaðar andlitsgrímur og sund- eða bakpoka merkta með nafni barns. Ýmsir litir eru í boði eins og sjá má í meðfylgjandi auglýsingu hér. Pantið hér: https://forms.gle/Bg9U4UrgLoHxVxhk6 Lokadagur pantana er föstudaginn 6. nóvember.
Lesa meira

Venulegur skóladagur mánudaginn 2. nóv. STARFSDAGUR þriðjudaginn 3. nóv.

Enn er beðið eftir nýrri reglugerð um takmarkanir á skólastarfi í ljósi hertra sóttvarnaaðgerða. Það sem við þó vitum er að hertari reglur fyrir skólana taka ekki gildi fyrr en á miðvikudaginn kemur, 4. nóv. Í ljósi þess hefur verið ákveðið að á morgun, mánudag verður venjulegur skóladagur og á ÞRIÐJUDAG verður STARFSDAGUR í Þelamerkurskóla, svo við getum skipulagt breytt skólastarf á þeim forsendum sem okkur verða gefnar.
Lesa meira

Búningadagur í skólanum föstudaginn 30. október

Í tilefni hrekkjavöku verður búningadagur í skólanum föstudaginn 30. október. Við hvetjum alla að mæta í búningi eða furðufötum þennan dag. Hrekkjavaka er hátíðisdagur haldin 31. október, ættaður frá keltum þar sem hann hét upphaflega Samhain (borið fram sánj á írsku). Þá voru færðar þakkir fyrir uppskeru sumarsins og boðin koma vetursins.
Lesa meira

Vistheimt með skólum tilnefnt til íslensku menntaverðlaunanna 2020

Verkefni Landverndar Vistheimt með skólum er tilnefnt til Íslensku menntaverðlaunanna 2020. Verkefnið er tilnefnt í flokki framúrskarandi þróunarverkefna. Þelamerkurskóli er einn af ellefu þátttakendum í verkefninu á landsvísu. Þátttaka nemenda og starfsfólks skólans felst að því að græða upp gamla malarnámu sem er staðsett norðan við Laugarland.
Lesa meira

Kajakferð í útivistarvali

Í gær fóru nemendur í útivistarvali á kajak á tjörninni á Hjalteyri og skemmtu sér konunglega. Siglt var bæði á eins manns kajak og tveggja manna og voru þeir í boði Jóns Þórs og Ingós/Siggu. Auk þess að njóta þess að róa um tjörnina fóru sumir í kappróður, týndu rusl meðfram bökkunum, stunduðu núvitund út á miðri tjörn og heilsuðu upp á svanapar á vatninu. Góð stund í alla staði :)
Lesa meira

Val eldri nemenda - Hjólabrettarampur

Í vali í haust hafa nokkrir drengir tekið að sér að smíða hjólabrettaramp fyrir skólann sem settur verður upp í námunni norðan við Laugaland. Eiríkur Helgason snjóbrettasnillingur frá Sílastöðum var okkur innan handar við hönnunina og hefur gefið okkur góð ráð. Rampurinn verður 3.80 metrar á breidd og um 5 - 6 metrar á lengd. Hann er settur saman úr fimm einingum. Verkið gengur vel og meðan veðrið helst gott heldur smíðin áfram. Vegna stærðar rampsins er ekki hægt að smíða hann inni. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í valtíma í dag.
Lesa meira

Matjurtirnar, uppskeran og dugnaðarforkar

Fíni matjurtargarðurinn okkar sem útbúinn var sl. vor er sannarlega að skila af sér. Í dag fóru nemendur 3. og 4. bekkjar út að taka upp kartöflur og eftir að hafa unnið eins og berserkir þar til búið að var að fínkemba kartöflugarðinn, fengu allir að taka upp eina gulrót á mann auk þess sem við sóttum okkur rófur og hnúðkál til að gæða okkur á í ávaxtastundinni. 1. og 2. bekkur höfðu fyrr í mánuðinum farið út og tekið upp nokkur kíló af kartöflum fyrir Óla kokk auk þess sem fleiri nemendur hafa sótt í soðið með sínum kennurum.
Lesa meira

Vegna forfalla er laus staða umsjónarkennara á yngsta stigi við Þelamerkurskóla

Við Þelamerkurskóla eru laus til umsóknar staða umsjónarkennara á yngsta stigi. Óskað er eftir að ráða fjölhæfan, sveigjanlegan, hlýjan og skapandi grunnskólakennara með mikla hæfni í samskiptum við börn. Umsjónarkennarinn vinnur í kennarateymi 1.-4. bekkjar. Í skólanum eru samtals 65 nemendur. Í Þelamerkurskóla er starfað með markvissum hætti í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa öllum nemendum aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst sveigjanleika og skapandi hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru þroski, menntun og samkennd. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga og Byrjendalæsis. Skólinn er heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á rafræna kennsluhætti, útikennslu og skapandi starf. Helstu verkefni ● Annast almenna umsjónarkennslu í teymi með öðrum umsjónarkennara í 1.-4. bekk. ● Stuðla að velferð og framförum nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan skólans sem utan. Menntunar- og hæfniskröfur ● Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. ● Þekking á og reynsla af innleiðingu og notkun Byrjendalæsis. ● Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi. ● Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi. ● Áhugi á að ná fram því besta úr hverjum nemanda. ● Færni í samvinnu og teymisvinnu. ● Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf við skólann. Umsóknarfrestur er t.o.m. 5. október 2020. Ferilskrá og umsókn í formi greinargerðar skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/ Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085.
Lesa meira

Dagur íslenskrar náttúru - heimsókn 5.-8. bekkjar á Hóla í Öxnadal

Á degi íslenskrar náttúru, sem er 16. september ár hvert, vinna margir skólar að einhverjum verkefnum sem tengjast náttúrunni. Markmiðið er að auka meðvitund, áhuga og þekkingu á náttúrunni, nærumhverfinu og samspili manns og náttúru. Jafnframt er tilgangurinn að efla þekkingarleit og áhuga nemenda á náttúruskoðun og tengja það fjölbreyttri leið til rannsókna, sköpunar og miðlunar. Í haust fengu nemendur 5. - 8. bekkjar boð um að koma í heimsókn til hjónanna á Hólum Öxnadal, þeirra Sifjar og Óla og þótti tilvalið að fara í þá heimsókn á þessum degi.
Lesa meira