Verkgreinakennari óskast í Þelamerkurskóla næsta skólaár í 50% starf

Við Þelamerkurskóla er laus til umsóknar hálf staða verkgreinakennara við hönnun og smíði ásamt kennslu í nýsköpun og tækni.

Óskað er eftir að ráða fjölhæfan, sveigjanlegan og skapandi grunnskólakennara með mikla hæfni í samskiptum við börn og ungmenni. Viðkomandi kennari starfar í nánu samstarfi við aðra kennara skólans. Skólinn er vel búinn tækjakosti og með skýra sýn á tækniþróun í öllu námi. Verknámi er gert hátt undir höfði og rík hefð er fyrir smíðanámi nemenda á öllum aldri með sjálfbærni að leiðarljósi.

Í Þelamerkurskóla er starfað með markvissum hætti í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa nemendum aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst sveigjanleika og skapandi hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru þroski, menntun og samkennd. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga og Byrjendalæsis. Skólinn er  heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á rafræna kennsluhætti, útikennslu og skapandi starf.

Helstu verkefni

  • Annast kennslu í hönnun og smíði með tengingu við nýsköpun og tækni, í góðri samvinnu við aðra kennara.

  • Efla nýsköpun og tækni í stoðþjónustu í samvinnu við stoðteymi og umsjónarkennara.

  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við aðra kennara, foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan skólans sem utan.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

  • Góð færni í hönnun og smíðum.

  • Mikill áhugi og þekking á nýsköpun og tækni og vilji til að taka þátt í þróunarstarfi.

  • Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi er kostur.

  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi er nauðsynlegt.

  • Áhugi á að ná fram því besta úr hverjum nemanda.

  • Færni í samvinnu og teymisvinnu.

  • Frumkvæði, skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og framkomu.

  • Krafist verður góðra meðmæla.


Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025. Umsóknarfrestur er t.o.m. 30. maí 2025. Óskað verður eftir meðmælum. Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra: annarosa@thelamork.is Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is  Frekari upplýsingar veitir Anna Rósa Friðriksdóttir, skólastjóri, annarosa@thelamork.is og í síma 460-1770.