Fréttir

Skólahald fellur niður

Skólahald fellur því miður niður í dag, miðvikudag 8. janúar, vegna ófærðar og versnandi veðurs.
Lesa meira

Jólakveðja

Starfsfólk Þelamerkurskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra, ásamt öllum velunnurum skólans gleðilegrar jólahátíðar með von um ljúfar stundir og farsæld á nýju ári. Við þökkum öllum gefandi og gott samstarf á árinu sem er að líða.
Lesa meira

Litlu jólin

Á litlu jólunum í Þelamerkurskóla er haldið í fallegar hefðir og er dagurinn einstaklega hugljúfur og skemmtilegur. Þrátt fyrir svolítil ófærðarævintýri á leið í skólann hjá hluta nemendanna áttum við fallegan dag með góðri og gefandi samveru. Dagurinn hófst á tónleikum gítarnemenda skólans ásamt atriði frá Marimba sveit skólans. Við fengum að heyra frásagnir af jólahefðum í Þýskalandi og á Filippseyjum auk þess sem afhent voru verðlaun fyrir hugmyndasamkeppnina um uppbyggingu á námusvæðinu norðan við skólann.
Lesa meira

Jólaskautaferð í Skautahöllina

Í mörg ár hefur verið hefð fyrir því í skólanum að fyrir jólin er farið með alla nemendur skólans á skauta í Skautahöllinni á Akureyri. Þetta er alltaf skemmtilegur dagur og nánast allir nemendur bregða sér á skauta undir glymjandi tónum jólalaganna. Eftir skautaferðina gengu nemendur síðan fylktu liði að Ráðhústorginu og sungu þar og dönsuðu kringum stóra jólatréð. Síðan var farið í skólann og nemendur fengu hádegismat. Eftir hádegi var svo jólabíó í skólanum fram að heimferð skólabíla.
Lesa meira

Upplestur unglinganna í fyrirtækjum á Akureyri

Þriðjudaginn 17. desember fór meginþorri nemenda á unglingastigi í upplestrarferð inn á Akureyri. Þeim var skipt í fjóra hópa og fóru hóparnir í mismunandi fyrirtæki þar sem þeir lásu upp fyrir starfsmenn og viðskiptavini úr nýjum jólabókum. Nemendurnir fóru samtals í rúmlega 80 fyrirtæki og fengu frá þeim fínar umsagnir sem sjá má neðar. Flestum fannst þetta skemmtilegt verkefni og þeir stóðu sig allir með sóma. Nemendur komu vel fram og lásu flestir hátt og skýrt. Sumir voru feimnari en aðrir en brutust út úr þægindarammanum og lásu samt fyrir þetta ókunnuga fólk. Allir enduðu svo á því að fá Subway eftir velheppnaðan túr um Akureyri.
Lesa meira

Kósýdagur: jólaljós, laufabrauð og smiðjur. Myndir

Við hófum daginn í dag á jólaljósaferðinni okkar þar sem við kveiktum á um 70 friðarkertum til að lýsa upp aðventuna og njóta fegurðar og friðar. Skólavinir hjálpuðust að og allt gekk eins og í sögu. Að ljósaferð lokinni sungum við og dönsuðum í kringum jólatréð við undirleik Jóns Þorsteins og Kristjáns frá tónlistarskólanum. Þá tók við kósýdagur þar sem nemendur flökkuðu á milli stöðva að eigin vali. Þar varð til fjöldi listaverka í myndmennta- og smíðastofunum auk þess sem nemendur skáru út laufabrauð, spiluðu, forrituðu, prófuðu nýjustu græjur skólans og fengu nudd, slökun og naglalakk.
Lesa meira

Þorpið - samþætt verkefni á unglingastigi. Myndband.

Um miðbik nóvember var kynning á afrakstri þemaverkefnis á unglingastigi. Þemaverkefnið snerist um það að unglingarnir útbjuggu 2000 manna þorp frá grunni. Þau þurftu að gera sér grein fyrir því hvaða þjónustu þau vildu hafa, hvernig húsnæði, hvaða atvinnu, hvernig sorp- og fráveitumálum væri háttað, það þurfti heitt og kalt vatn og þar fram eftir götunum. Þau þurftu að staðsetja þorpið á eða við landið og hanna húsin, bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Krakkarnir luku þemaverkefni um þorpin með glæsibrag og héldu kynningu þriðjudaginn 19. nóvember! Gaman var að sjá hversu margir sáu sér fært að koma og ljúka þessu verkefni með okkur. Heilt á litið finnst okkur verkefnin hafa gengið vel, krakkarnir hafa lært helling af þessu (þó þeir átti sig kannski ekki á því til fullnustu). Íslenskan kom inn sem framsögn og ritun á kynningu, stærðfræðin poppaði upp við að minnka hús og önnur mannvirki og hafa það allt í réttum hlutföllum, náttúrufræðin kom inn í umhverfismenntun. Upplýsingatækni birtist í bæklingum og þar voru enskan og danskan innvinkluð í verkefnið. Smíðar voru nýttar í gerð líkana og myndmennt í málun. Hönnun kom sterk inn þegar þorpið var ákveðið og síðast en ekki síst var samfélagsfræðin tekin fyrir í þorpinu sjálfu, samfélaginu, hvað það þurfti og hvað var hægt að samnýta. Samvinna var svo lykilþátturinn í allri vinnunni.
Lesa meira

Næsta vika

Í næstu viku, síðustu vikunni fyrir jólafrí, verður margt um að vera og með því að smella á fréttinna má sjá yfirlit yfir dagskrá hvers dags fyrir sig.
Lesa meira

Skólahald fellur niður í dag, fimmtudag 12. des.

Því miður fellur skólahald niður í dag, fimmtudag 12. des. Enn er ófært á flestum vegum sveitarinnar og því næðum við aðeins litlum hluta nemenda í skólann. Það mun taka allan daginn að klára að moka vegina auk þess sem farið er að snjóa aftur. Vonandi ná krakkarnir að njóta þess að lesa eitthvað skemmtilegt eða glugga í skólabækurnar og vinna verkefni sem kunna að bíða eftir þeim á Google Classroom. Við erum þó hér í skólanum og tökum fagnandi á móti öllum sem hingað koma.
Lesa meira

Fimmtudagur - Ófærð raskar skólahaldi

Þar sem hægt gengur að moka snjó af vegum er ljóst að skólarútur komast ekki leiðar sinnar. Einnig er enn ófært að skólanum sjálfum. Skólahaldi verður því frestað um sinn og við sendum út nýjar upplýsingar kl 10.
Lesa meira