Fréttir

Öskudagsgleði í ÞMS þriðjudaginn 25. febrúar

Eins og hefð er fyrir verður öskudagsgleði Þelamerkurskóla á sprengidaginn sem er þriðjudaginn 25. febrúar. Nemendur geta komið strax um morguninn í búningum sínum og máluð, en fram að hádegi er kennt samkvæmt stundaskrá. Hádegismatur verður frá kl. 12.00 – 12.30 og frá 12.30 – 13.00 undirbúa nemendur sig fyrir öskudagsballið. Þeir sem þurfa aðstoð við málun fá hana í stofu 6. Öskudagsskemmtunin hefst á sal kl. 13.00. Dagskrá hennar er: Kötturinn sleginn úr tunnunni Tunnukóngur/drottning krýnd/ur með viðhöfn Söngvakeppni öskudagsliða Öskudagsball Úrslit úr söngvakeppninni Marsering undir stjórn elsta námshópsins Skólavinir marsera saman Á öskudagsskemmtuninni væri gaman ef allir að gætu verið í búningum. Foreldrar eru auðvitað velkomnir á skemmtunina. Rútur fara heim á venjulegum tíma eða kl. 14.25. ATH: Það verður vetrarleyfi í skólanum 26. - 28. febrúar Eins og við öll vitum þá er tíminn fyrir öskudag er oftast hlaðinn tilhlökkun hjá börnunum. En hjá sumum er hann líka hlaðinn ákveðinni spennu sem myndast við skipan í öskudagslið. Við viljum biðja foreldra um að aðstoða börn sín við að setja saman liðin með því að ráðfæra sig hver við annan svo að allir sem þess óska komist glaðir í öskudagslið.
Lesa meira

Lært um matarframleiðslu og geymsluaðferðir fyrri tíma

Fimmtudaginn 13. febrúar fór miðstig í heimsókn í Nonnahús. Þar var búið að setja upp sýningu á hlutum sem tengjast vinnslu mjólkurafurða í gamla daga og fengum við fræðslu um matarframleiðslu og geymsluaðferðir fyrri tíma. Ragna Gestsdóttir tók á móti hópnum og sýndi okkur meðal annars hvernig rjómi verður að smjöri og bauð okkur að smakka mysu og sviðasultu. 6. bekkingar munu búa til sviðasultu nú í vikunni sem borðuð verður á þorrablóti sem þeir halda nk. föstudag fyrir 1. - 6. bekk.
Lesa meira

Skólahald fellur niður föstudaginn 14. febrúar

Eins og flestir hafa séð, er veðurspá fyrir morgundaginn afar slæm og gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun um allt land. Með henni fylgja orðin „ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi“. Rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur auk þess lýst yfir óvissu­stigi al­manna­varna fyr­ir allt landið. Í ljósi þessa upplýsinga hefur verið tekin ákvörðun um að skólahald í Þelamerkurskóla fellur niður á morgun, föstudaginn 14. febrúar.
Lesa meira

Árshátíð skólans - myndir

Árshátíð Þelamerkurskóla fór fram í íþróttahúsinu á Þelamörk fimmtudaginn 6. febrúar.
Lesa meira

Árshátíð Þelamerkurskóla 2020

Árshátíð Þelamerkurskóla verður haldin fimmtudaginn 6. febrúar kl. 16.30. Allir velkomnir!
Lesa meira

Fjör í útiskóla - myndir og myndbönd

Í útiskóla var í vikunni verið að vinna með snjóinn og snjókornin því þau eru svolítið eins og við: engin tvö eru eins. Snjórinn var nýttur eins og blað og nemendur mótuðu og máluðu snjókorn. Eftir það var farið í stóru brekkuna norðan við skólann þar sem þoturassarnir komu að góðum notum. Hlátrasköll, tónlist og rjóðar kinnar voru einkennismerki þess fjöruga hóps sem stundaði útinám þennan miðvikudag.
Lesa meira

Kynfræðsla Siggu Daggar 28. janúar nk.

Þriðjudaginn 28. janúar verður boðið upp á kynfræðslu fyrir 5.-7. bekk annars vegar og 8.-10. bekk hinsvegar á vegum Siggu Daggar kynfræðings https://www.siggadogg.is/. Auk þess verður boðað verður til foreldrafundar þar sem Sigga Dögg mun halda fyrirlestur um leiðir til að ræða um kynlíf við unglinga.
Lesa meira

Skólahald skv. áætlun en röskun á skólaakstri tveggja leiða

Skólahald verður skv. áætlun í dag en skólaakstur á leiðinni Engimýri-Myrkárbakki-Langahlíð fellur því miður niður vegna ófærðar þar. Mokað verður inn að Fornhaga en einhver röskun gæti orðið á tímasetningum þeirrar rútu.
Lesa meira

Skólahald fellur niður

Skólahald fellur því miður niður í dag, miðvikudag 8. janúar, vegna ófærðar og versnandi veðurs.
Lesa meira

Jólakveðja

Starfsfólk Þelamerkurskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra, ásamt öllum velunnurum skólans gleðilegrar jólahátíðar með von um ljúfar stundir og farsæld á nýju ári. Við þökkum öllum gefandi og gott samstarf á árinu sem er að líða.
Lesa meira