09.06.2020
Þelamerkurskóla var slitið fimmtudaginn 4. júní. Skólaslit 1. - 6. bekkjar fóru fram á sparkvelli skólans en skólaslit 7. - 10. bekkjar í Hlíðarbæ seinna sama dag. Sjö nemendur 10. bekkjar voru brautskráðir og sex nemendur 1. bekkjar voru boðnir velkomnir í skólann. Á fyrri skólaslitunum voru veitt tvenn verðlaun. Það voru verðlaun fyrir hönnun og smíðar og sólskinsverðlaun skólans.
Verðlaun í hönnun og smíðum komu í hlut Ylfu Sólar Agnarsdóttur sem er nemandi í 3. bekk. Verðlaunin hlaut Ylfa Sól fyrir framúrskarandi árangur í hönnun og smíðum og mikla verkhæfni miðað við aldur.
Á fyrri skólaslitunun voru sólskinsverðlaunum Þelamerkurskóla einnig afhent en þau eru veitt nemendum sem leggja sig sérstaklega fram, skólastarfinu til hagsbóta. Sólskinsverðlaunin 2019-2020 hlýtur nemandi sem ávallt sýnir mikla jákvæðni og er einstaklega samvinnufús og hjálpsamur. Þessi viðurkenning kom í hlut Elínar Öldu Bragadóttur 6. bekk.
Á seinni skólaslitunum sem haldin voru í Hlíðarbæ voru veitt fern verðlaun. Fyrst voru það Jónasarverðlaunin sem Jónasarsetur, Menningarfélagið Hraun í Öxnadal veitir útskrifarnemendum viðurkenningu í minningu Jónasar Hallgrímssonar. Í ár var mjög erfitt að gera upp á milli nemenda og gátu mjög margir fengið verðlaun fyrir námsárangur. Að lokum stóð valið á milli tveggja framúrskarandi nemenda sem ekki var hægt að gera upp á milli núna frekar en áður á skólagöngu þeirra. Þessir tveir nemendur eru alltaf tilbúnir til að taka þátt í þeim verkefnum sem fyrir þá eru lögð, gera það með bros á vör og skila oftast mjög góðu verki. Þetta eru þær Álfhildur Helga Ingólfsdóttir og Bjarney Viðja Vignisdóttir nemendur í 10. bekk.
Viðurkenningu fyrir hannyrðir hlaut Auður Karen Auðbjörnsdóttir í 9. bekk. Auði hefur farið mikið fram í vetur og er hún mjög sjálfstæð í vinnu sinni. Hún er vandvirk, hugmyndarík og óhrædd við að prufa nýjar aðferðir.
Ástundunarverðlaun skólans kom í hlut Ólafar Eyrúnar Bragadóttir í 10. bekk. Ólöf hefur sinnt náminu af mikilli prýði í vetur og hefur sýnt einstakan áhuga og þrautseigju.
Að lokum var íþróttamaður Þelamerkurskóla tilnefndur. Í ræðu skólastjóra kom fram að skólinn er ríkur af öflugu íþróttafólki en fyrir valinu í ár varð nemandi sem er mikill íþróttamaður. Hann leggur sig fram í tímum, tilbúinn að hjálpa öðrum og er flottur liðsmaður. Hann er mikill keppnismaður og gefur sjaldan eftir. Íþróttamaður Þelamerkurskóla skólaárið 2019 - 2020 er Jónsteinn Helgi Þórsson nemandi í 10. bekk.
Þrír kennarar voru kvaddir á skólaslitunum
Ágústa Berglind Hauksdóttir, sem verið hefur í leyfi í vetur og óskaði eftir lausn frá starfi. Við þökkum henni fyrir vel unnin störf og skemmtilegan félagsskap til margra ára.
Jónína Sverrisdóttir er búin að starfa í Þelamerkurskóla í 20 ár. Hún hefur nú ákveðið að komið sé að tímamótum og mun nú snúa til annarra starfa. Jónínu eru færðar hjartans þakkir fyrir frábær störf í þágu nemenda og skólans alls öll þessi ár.
Sigurður F. Sigurðarson kom til okkar í haust í afleysingu og átti góðar stundir og vann flott og hugmyndaríkt starf með unglingadeildinni. Við þökkum Bibba kærlega fyrir hans framlag í vetur.
Tveir nýir kennarar hefja störf við skólann í ágúst, en það eru þau Hjördís Stefánsdóttir, sem fer í teymi yngsta stigs og Helga Kolbeinsdóttir sem mun sjá um list- og verkgreinakennslu við skólann. Við bjóðum þær tvær velkomnar til starfa, en Helga er kominn inn í hópinn eftir að hafa verið hjá okkur í afleysingu í vetur.
Þelamerkurskóli verður settur þann 24. ágúst 2020
Lesa meira
27.05.2020
Þriðjudaginn 2. júní var farið með alla nemendur skólans í vorferð til Dalvíkur. Við skoðuðum Byggðasafnið Hvol á Dalvík sem er lítið en fjölbreytt og skemmtilegt safn. Þar er meðal annars hægt að fræðast um líf og starf Jóhanns Svarfdælings sem var stærsti Íslendingur sem sögur fara af. Við fæðingu vó Jóhann 18 merkur og var hann þriðja barn foreldra sinna af níu systkinum. Jóhann var 2,34 metrar á hæð þegar hann mældist hæstur og vó þá 163 kg.
Einnig fengu nemendur að prófa að fara í minigolf og klifra í klifurvegg. Í hádeginu var boðið upp á grillaða hamborgara sem runnu ljúft niður. Síðan brugðu nemendur sér í sund í Sundlaug Dalvíkur. Við fengum gott veður þennan dag og þegar veðrið er gott eru allir glaðir.
Lesa meira
25.05.2020
Hver dagur í Þelamerkurskóla hefst á Mílugöngu nemenda og starfsfólks. Mílan er hugmynd sem á upptök sín í Skotlandi, en markmiðið með Mílunni er að efla andlega og líkamlega heilsu nemenda og starfsfólks. Búið er að stika 400 metra hring við skólann og eru gengnir lágmark fjórir hringir og tekur gangan um 15-20 mínútur. Að göngu lokinni fara allir inn að lesa fram að morgunmat. Í Mílunni anda allir að sér súrefni á meðan þeir spjalla um daginn og veginn ýmist við félaga sína eða starfsfólk skólans, njóta umhverfisins í ró með sjálfum sér eða taka á sprett og líta á þetta sem góða hlaupaæfingu í morgunsárið.
Lesa meira
20.05.2020
Í tímanum Hreyfing og heilsa hjá 7. og 8. bekk unnu nemendur að því að undirbúa matjurtargarð, en kennarar fengu þá hugmynd um daginn að fá nemendur með sér í lið við að búa til matjurtargarð við skólann og vinna með því að markmiðum er lúta meðal annars að sjálfbærni, hreyfingu, sköpun, samvinnu, verkfærni og heimilisfræði. Nemendur í öðrum bekkjum skólans munu svo halda áfram með verkefnið í næstu viku og er stefnt að því að allir nemendur komi á einhvern hátt að vinnu við ræktunina.
Lesa meira
14.05.2020
Í samstarfi við KrakkaRÚV vinnur umboðsmaður barna að nýju verkefni undir heitinu „Áhrif
kórónuveirunnar á líf barna“. Tilgangur þess er að safna saman frásögnum barna um líðan þeirra og
reynslu af þeim breytingum sem kórónufaraldurinn hefur haft á daglegt líf svo sem skólagöngu barna,
þátttöku í tómstundum og aðstæður þeirra heima fyrir. Þannig sköpum við mikilvæga samtímaheimild um
leiðir barna til að takast á við samfélags áhrif heimsfaraldurs og áður óþekktar aðstæður.
Lesa meira
13.05.2020
Við Þelamerkurskóla er laus til umsóknar staða list- og verkgreinakennara með áherslu á kennslu í hannyrðum, myndmennt og tónmennt.
Lesa meira
08.05.2020
Sorp er vandamál sem hefur farið vaxandi á undanförnum áratugum. Fyrir liggja áætlanir um að minnka ýmiskonar úrgang um helming á næstu 15 árum m.a. með því að flokka sorp og með því að endurvinna og jarðvinna það. Samkvæmt upplýsingum frá Sorpu er heildarheimilisúrgangur um 300 – 350 kg. á mann. Þar af eru um 100 kg. af lífrænum úrgangi. Afurðin sem fæst með jarðgerð hefur hlotið nafnið molta. Í Þelamerkurskóla hefur verið unnið í moltugerð í nokkur ár og hefur sú framleiðsla gengið vel.
Í vor hafa nemendur skólans verið í ýmsu fjölbreyttu vali fjórum sinnum í viku. Eitt valið hjá nemendum 7. - 10. bekkjar hefur verið að smíða nýjan þriggja hólfa moltukassa fyrir skólann en gömlu kassarnir voru orðnir frekar lélegir og löngu kominn tími á að endurnýja þá. Verkefnið hefur gengið vel og smiðirnir sem komu að þessu verkefni hafa verið sérstaklega áhugasamir og duglegir. Vonumst við til þess að klára kassann í næstu viku.
Lesa meira
07.05.2020
Kennarar og nemendur á yngsta stigi skólans hafa verið að vinna að alþjóðlegu Erasmus verkefni í samstarfi við Landvernd um lífbreytileika og vistkerfi. Sl. haust fóru þær stöllur Anna Rós og Jónína til Slóveníu ásamt fulltrúa Landverndar og fjórum öðrum kennurum frá Íslandi. Ferðin var mjög fræðandi og var meginverkefnið að vinna saman að bók sem telur fjöldann allan af náttúrufræðiverkefnum fyrir ung börn. Bókin verður rafræn og endurgjaldslaus og á ótal tungumálum þannig að sem flestir ættu að geta notið hennar, hvar sem er í heiminum. Verkefnin í bókinni voru rýnd þannig að þau ættu að vera framkvæmanleg á sem flestum stöðum.
Lesa meira
05.05.2020
Í valtíma 5. - 10. bekkjar á mánudaginn bjuggu nemendur skólans til endurvinnslubíl þar sem hjólabúnaður bílsins eru tvær tómar gosdósir. Í næstu viku gerir annar hópur sama verkefni. Seinna í maí verður síðan kappaksturkeppni niðri í íþróttahúsi þar sem bílarnir keppna um hver verði fyrstur til þess að fara yfir íþróttasalinn. Nemendur sýndu þessu verkefni mikinn áhuga og ýmsar hugmyndir komu fram um það hvernig hægt væri að gera bílana hraðskreiðari til þess að eiga möguleika á að vinna keppnina.
Lesa meira
28.04.2020
5. og 6. bekkingar drifu sig út í góða veðrið í dag og unnu náttúrutengt íslenskuverkefni. Nemendum var skipt í hópa og var svo úthlutað nokkrum bókstöfum. Hver hópur átti að finna eitthvert náttúrufyrirbrigði sem byrjar á sama staf og hópnum var úthlutað. Því næst myndaði hópurinn bókstafina úr náttúrufyrirbrigðunum.
Hér má sjá myndir af kátum krökkum með verkefnin sín https://photos.app.goo.gl/2sYCqYd2p5jpGcid7
Lesa meira