Fréttir

Skíðaskólinn

Þriðjudaginn 2. mars fór 1.-2. bekkur í skíðaskóla upp í Hlíðarfjall. Miðvikudaginn 5. mars fóru þau aftur ásamt 3.-4. bekk. Nemendur skíðuðu í frábæru veðri og enduðu á að fá sér hressingu áður en lagt var af stað heim úr Hlíðarfjalli. Nemendur fengu skíðakennslu frá skíðakennurum, foreldrum og starfsfólki skólans. Einnig tóku 10 nemendur úr 7.-10. bekk þátt í skíðakennslunni og stóðu þau sig afar vel.
Lesa meira

Félagsvist - ánægjuleg samverustund

Það var afar ánægjulegt hjá okkur síðasta föstudag þegar eldri borgarar Hörgársveitar komu í heimsókn til nemenda í 7.–10. bekk.
Lesa meira

Frétt frá 1. bekk

Við í 1. bekk höfum undanfarnar tvær vikur unnið með bækurnar Kroppurinn er kraftaverk og Komdu að skoða líkamann.
Lesa meira

Frétt frá 5. bekk - Okkar eigin kynjaskepnur

Við í 5. bekk vorum að vinna verkefni um íslenskar kynjaskepnur.
Lesa meira

Öskudagsskemmtun

Það var mikið húllumhæ í skólanum í dag. Nemendur og starfsfólk mættu í búningum í skólann og skemmtu sér konunglega saman. Met þátttaka var í söngkeppni öskudagsliða og veitti dómnefnd nokkrar viðurkenningar til dæmis fyrir söng, frumlegheit, liðsheild og fleira.
Lesa meira

Farsæld barna

Í vikunni kynntu tengiliðir Þelamerkurskóla farsæld barna í öllum bekkjum skólans. Tilgangurinn var að vekja athygli á farsældarþjónustu skólans og hlutverki tengiliða sem nemendur hafa ávallt aðgang að.
Lesa meira

Frábærri dansviku lokið!

Í dag lauk dansviku hjá okkur í Þelamerkurskóla. Ingunn Margrét Hallgrímsdóttir danskennari kom til okkar og hitti hvern námshóp fimm sinnum frá 2. til 6. febrúar.
Lesa meira

Þorrablót í boði 6. bekkjar

6. bekkingar buðu 1.-5. bekk og starfsfólki á þorrablót í dag, á sjálfan bóndadaginn. Nemendur höfðu staðið í ströngu við að undirbúa þorrablótið ásamt Margréti umsjónarkennara þeirra.
Lesa meira